Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson urðu Íslandsmeistarar í golfi í annað sinn á sunnudag er þau stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmótinu sem var haldið á Hólmsvelli í Leiru. Þau urðu einmitt bæði meistarar í fyrsta skipti árið 2021 og …
![Meistarar Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson eru Íslandsmeistarar í golfi árið 2024.](/myndir/gagnasafn/2024/07/24/0b3ce285-80fb-4c57-aa3a-6786ccc5cd52.jpg)
Meistarar Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson eru Íslandsmeistarar í golfi árið 2024.
— Ljósmynd/Seth@golf.is
Golf
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson urðu Íslandsmeistarar í golfi í annað sinn á sunnudag er þau stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmótinu sem var haldið á Hólmsvelli í Leiru.
Þau urðu einmitt bæði meistarar í fyrsta skipti árið 2021 og hafa því fagnað sigri á stærsta móti Íslands saman í tvígang, en þau leika bæði fyrir Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar, GKG.
Það er skammt stórra högga á milli hjá Huldu Clöru sem flaug til Finnlands um hálfum sólarhring eftir að hún varð Íslandsmeistari til að taka þátt á EM áhugamanna. Andrea Björg Bergsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir keppa einnig á mótinu.
„Ég kom hingað til
...