Knattspyrnukonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir spilar ekki meira með Breiðabliki á þessu tímabili. Hún hefur verið mikið frá undanfarin ár en á þessu tímabili hefur hún aðeins spilað sex leiki í deild og einn í bikar

Knattspyrnukonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir spilar ekki meira með Breiðabliki á þessu tímabili. Hún hefur verið mikið frá undanfarin ár en á þessu tímabili hefur hún aðeins spilað sex leiki í deild og einn í bikar. Áslaug Munda tognaði aftan í læri í upphitun fyrir leik Breiðabliks gegn Val í maí sl. og hefur átt erfitt með að koma sér aftur á völlinn í kjölfarið. Þar á meðal vegna erfiðra veikinda og blóðsýkingar. Þá síðast fyrir þremur vikum tognaði hún aftan í læri sem hefur haldið henni alfarið frá fótbolta og verður hún ekki með Breiðabliki meira í sumar. Hún fer síðan til Bandaríkjanna í byrjun ágúst en hún spilar með Harvard í háskólaboltanum þar í landi.

Sex leikmenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea fara ekki með karlaliðinu í æfingaferð til Bandaríkjanna. Þetta eru þeir Romelu Lukaku, Kepa Arrizabalaga,

...