Tónlistarmaðurinn og dansarinn Torfi heldur tónleika í Sunnusal Iðnó í kvöld kl. 21 til að fagna útgáfu plötunnar EITT sem kom út í apríl. Ásamt Torfa kemur tónlistarkonan Katla Yamagata fram en hún gaf nýverið út sitt fyrsta lag,…
Torfi Tónlistarmaður og dansari.
Torfi Tónlistarmaður og dansari.

Tónlistarmaðurinn og dansarinn Torfi heldur tónleika í Sunnusal Iðnó í kvöld kl. 21 til að fagna útgáfu plötunnar EITT sem kom út í apríl. Ásamt Torfa kemur tónlistarkonan Katla Yamagata fram en hún gaf nýverið út sitt fyrsta lag, „Hjáleið“, ásamt JóaPé af fyrstu stuttskífu sinni sem er væntanleg á árinu,“ segir í viðburðarkynningu. Þar er rifjað upp að Torfi hafi hreppt annað sætið í Músíktilraunum í fyrra og verið nefndur sem listamanneskja til að fylgjast með hjá tónlistarverðlaunum The Reykjavík Grapevine fyrr á árinu.

„Ég er í nútímadansi í LHÍ og nálgunin mín þegar kemur að tónleikum er ekkert öðruvísi en það sem ég fæst við sem dansari. Fyrir mér snýst þetta um svo mikið meira en að flytja tónlist. Ég vil búa til einhvers konar heildræna upplifun sem gefur áhorfendum eitthvað til að taka með sér heim,“ er

...