Anna Þuríður Ingólfsdóttir fæddist í Reykjavík 25. júlí 1946. Hún lést á Hrafnistu við Hraunvang 12. júlí 2024.

Foreldrar hennar voru Þuríður Hilda Hinriks, f. 23. nóvember 1921, d. 23. júní 2013, og Ingólfur Kristjánsson, rithöfundur og blaðamaður, f. 12. desember 1919, d. 27. mars 1974. Systir Önnu Þuríðar var Unnur Björg, f. 5. júlí 1942, d. 3. nóvember 2013, maki Daníel Axelsson.

Eftirlifandi eiginmaður Önnu Þuríðar er Magnús Þór Hilmarsson flugvirki, f. 30. júní 1946. Þau giftu sig 18. nóvember 1967 í Háteigskirkju og eignuðust þrjá syni: 1) Jónbjörn, f. 3. ágúst 1967, d. 14. nóvember 1987. 2) Hilmar, f. 28. júní 1970, giftur Hönnu Björk Sigurðardóttur, börn þeirra eru Bjarki Þór og Guðbjörg Ýr. 3) Ingólfur Magnússon, f 18. júlí 1975, giftur Tinnu Haraldsdóttur, börn þeirra eru Ástrós Eva og Jónþór Atli.

...