![Mannlíf Mun færri ferðamenn koma hingað til lands í ár en búist var við. Viðmælendur blaðsins segja að horfast verði í augu við að verð sé of hátt.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/64bb0dd5-08ef-4549-b378-458e12c47581.jpg)
Mannlíf Mun færri ferðamenn koma hingað til lands í ár en búist var við. Viðmælendur blaðsins segja að horfast verði í augu við að verð sé of hátt.
— Morgunblaðið/Eyþór
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna. Það er bara sorgleg staðreynd,“ segir Guðmundur Kjartansson, forstjóri og aðaleigandi Iceland ProTravel Group samstæðunnar. Fyrirtækið sérhæfir sig í skipulagningu Íslandsferða og er með eigin ferðaheildsala í Þýskalandi og Sviss.
Ferðaþjónustuaðilar sem Morgunblaðið hefur rætt við eru sammála um að hátt verð á hótelgistingu spili stóra rullu í því að færri ferðamenn koma hingað í ár en búist var við. Einn þeirra nefndi að heildsölum sem hann á í viðskiptum við hefði verið boðin hótelbergi á 50-100 þúsund krónur nóttin í fyrrasumar. Þegar slíku verði sé haldið til streitu leiti fólki einfaldlega annað.
Guðmundur hjá Iceland ProTravel segir augljóst að
...