![Reynd Þórey Edda keppti á þrennum Ólympíuleikum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/8582da43-0e71-4378-b93b-5fceba3ea2cc.jpg)
Reynd Þórey Edda keppti á þrennum Ólympíuleikum.
Þórey Edda Elísdóttir, sem keppti í stangarstökki á Ólympíuleikunum árin 2000, 2004 og 2008, stefnir á að fara út að fylgjast með leikunum í ár, en hún gegnir nú stöðu 1. varaforseta framkvæmdastjórnar ÍSÍ. „Ég fylgist því með í gegnum starf ÍSÍ út frá skipulaginu, en svo er ég líka mikill aðdáandi íslensku keppendanna. Ég fylgi þeim öllum á Instagram og er spennt að sjá þau keppa.“
Þá segist hún einnig vera mikið að fylgjast með fimleikastjörnunni Simone Biles, sem keppir í fimleikum fyrir hönd Bandaríkjanna.
„Hún er algjörlega uppáhaldsíþróttakonan mín, ég fylgist með nokkrum fimleikakonum en hún vekur náttúrulega sérstaklega mikla athygli enda er hún sér á báti. Ég held
...