Loftbelgir fullir af rusli, sem sendir voru frá Norður-Kóreu yfir landamærin til Suður-Kóreu, lentu í gærmorgun við forsetahöllina í höfuðborginni Seúl og sprungu. Sérstök efnavonasveit var send á vettvang til að hreinsa svæðið
![Rusl Sérsveitarmenn í eiturefnabúningum hreinsa rusl frá Norður-Kóreu við forsetahöllina í Seúl.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/b593646d-95c0-493e-98e4-33475d05c96a.jpg)
Rusl Sérsveitarmenn í eiturefnabúningum hreinsa rusl frá Norður-Kóreu við forsetahöllina í Seúl.
— AFP/Yonhap
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Loftbelgir fullir af rusli, sem sendir voru frá Norður-Kóreu yfir landamærin til Suður-Kóreu, lentu í gærmorgun við forsetahöllina í höfuðborginni Seúl og sprungu. Sérstök efnavonasveit var send á vettvang til að hreinsa svæðið.
Þetta var í fyrsta skipti sem slíkur loftbelgur lendir á lóð forsetahallarinnar í miðborginni en hún er varin af tugum hermanna og yfir henni er flugbann í gildi.
...