Ég held að tilfinningarnar í kvikmyndinni séu kannski það róttækasta við hana,“ segir Levy.
![Vinátta Ryan Reynolds og Hugh Jackman eru greinilega mestu mátar og gerðu góðlátlegt grín hvor að öðrum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/42efd217-4826-48c3-8b78-4816dbd0fe53.jpg)
Vinátta Ryan Reynolds og Hugh Jackman eru greinilega mestu mátar og gerðu góðlátlegt grín hvor að öðrum.
— Ljósmynd/StillMoving.Net. The Walt Disney Company Limited
Viðtal
Snædís Björnsdóttir
snaedis@mbl.is
Sprelligosinn Deadpool er snúinn aftur og mætir þekktu ofurhetjunni Wolverine í nýjustu kvikmyndinni frá Marvel, Deadpool & Wolverine, sem frumsýnd var í gær. Í kvikmyndinni takast hetjurnar tvær á við hið gríðarstóra verkefni að bjarga heiminum og segir hún frá vináttu þeirra og átökum. Morgunblaðinu bauðst að taka þátt í blaðamannafundi um kvikmyndina á dögunum.
Fundurinn fór fram í London og voru hátt í tvö hundruð blaðamenn víðsvegar að úr heiminum viðstaddir ýmist í persónu eða í gegnum fjarfundarbúnað á netinu. Blaðamaður Morgunblaðsins tók þátt í gegnum netið og var fyrirkomulagið með þeim hætti að þátttakendur sendu inn spurningar sem öllum var frjálst að nota að vild.
...