Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur og fv. hjúkrunarframkvæmdastjóri, fæddist á Dalvík 16. júní 1939. Hún lést 15. júlí 2024.

Foreldrar hennar voru hjónin Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri á Dalvík, f. 28. október 1910, d. 13. janúar 1993, og Hrefna Júlíusdóttir, húsfreyja á Dalvík, f. 7. júlí 1914, d. 11. mars 1990.

Systkini Nönnu eru Halla Soffía, f. 1943, og Júlíus Óskar, f. 1952.

Nanna giftist Jónatan Sveinssyni hæstaréttarlögmanni, f. 18. febrúar 1934, d. 29. september 2014, á gamlársdag 1962 og eiga þau tvo syni: 1) Svein hæstaréttarlögmann, f. 1963, maki Brynja Ólafsdóttir grunnskólakennari, f. 1963. Dætur þeirra eru Nanna og Sigrún Hrefna. Dóttir Brynju er Alexandra Gyða Frímannsdóttir en börn hennar eru Atlas Máni og Máney Brynja. 2) Jónas verkfræðing, f. 1964, maki Anna

...