Sund Lára Hrund keppti í sundi á tvennum leikum.
Sund Lára Hrund keppti í sundi á tvennum leikum.

Lára Hrund Bjargardóttir, sem keppti á Ólympíuleikunum í skriðsundi árin 2000 og 2004, segist helst ætla að fylgjast með sundinu í ár. Þá segir hún íslensku keppendurna, þau Anton Svein McKee og Snæfríði Sól Jórunnardóttur, hafa alla burði til að standa sig vel á mótinu.

„Ég mun líka fylgjast með henni Guðlaugu Eddu í þríþrautinni, það er rosa flottur árangur hjá henni að komast á leikana.“ Þá segist Lára alltaf fylgjast eitthvað með Ólympíuleikunum þegar þeir fara fram. „Það er varla annað hægt, þetta er svo ótrúleg upplifun fyrir keppendur og ég samgleðst þeim svo innilega að hafa náð þeim árangri bara að komast á leikana. Ég tala nú ekki um hversu spennandi það verður að sjá hann Anton sérstaklega, hvernig honum mun vegna.

...