Streymisveitan Apple Music Classical hefur birt lista yfir þær 100 klassískar plötur sem mest er hlustað á samkvæmt þeim tónlistarþjónustum sem Apple-fyrirtækið heldur úti í 165 ríkjum heims, þ.e. streymisveitunum Apple Music‌ Classical og…
Víkingur Heiðar Ólafsson
Víkingur Heiðar Ólafsson — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Streymisveitan Apple Music Classical hefur birt lista yfir þær 100 klassískar plötur sem mest er hlustað á samkvæmt þeim tónlistarþjónustum sem Apple-fyrirtækið heldur úti í 165 ríkjum heims, þ.e. streymisveitunum Apple Music‌ Classical og Apple Music‌, tónlistarversluninni iTunes og smáforritinu Shazam.

Á listanum eru eðli máls samkvæmt mörg þekkt nöfn úr klassíska tónlistargeiranum. Sérstaka athygli vekur að Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari á ekki einungis eina plötu á listanum heldur samtals fjórar sem hann hefur gefið út hjá Deutsche Grammophon á umliðnum árum. Í 19. sæti er plata hans með Goldberg-tilbrigðum Bachs sem út kom 2023; í 61. sæti er fyrri Bach-plata Víkings sem út kom 2018 og hlaut tvenn verðlaun tímaritsins BBC Music Magazine árið 2019; í 87. sæti er platan þar sem Víkingur leikur verk eftir Debussy og Rameau sem út kom 2020 og loks í 89.

...