![Arsenal Riccardo Calafiori er háttskrifaður miðvörður frá Ítalíu.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/0ac11f46-4b34-4501-b552-7ed01c682634.jpg)
Arsenal Riccardo Calafiori er háttskrifaður miðvörður frá Ítalíu.
— AFP
Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur samið við Bologna á Ítalíu um kaup á ítalska varnarmanninum Riccardo Calafiori. Hann er 22 ára miðvörður sem var í liði Ítalíu á EM í Þýskalandi í sumar og spilaði alla fjóra leikina eftir að hafa leikið sinn fyrsta A-landsleik í byrjun júní. Kaupverðið er talið vera 42 milljónir punda en Calafiori átti í gær eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Arsenal og skrifa undir samninginn.