Íslensku liðin fjögur sem leika í Sambandsdeild karla í fótbolta spila öll heimaleiki sína í 2. umferð í kvöld. Valsmenn mæta St. Mirren frá Skotlandi, Víkingar mæta Egnatia frá Albaníu, Stjarnan mætir Paide frá Eistlandi og Breiðablik mætir Drita frá Kósovó. Ef árangur gegn þessum þjóðum í Evrópukeppni er skoðaður ættu Víkingur og Stjarnan að eiga mesta möguleika á að komast áfram. » 54