Gunnar Þorvaldsson fæddist 23. apríl 1947. Hann lést 13. júlí 2024.

Útför hans fór fram 24. júlí 2024.

Við vorum ekki undir það búin að þurfa að kveðja hann Gunnar Þorvaldsson svona snemma og hefðum sennilega aldrei verið, því sumar manneskjur eru hreinlega stærri en lífið sjálft. Gunnar var kletturinn í fjölskyldunni. Ekki aðeins mágur og svili heldur einnig lærifaðir, samstarfsmaður, ferðafélagi og síðast en ekki síst kær vinur.

Gunnar var uppátækjasamur með eindæmum, stríðinn og mikill stemningsmaður og það var alltaf gaman að vera með honum. Hann var góðhjartaður, örlátur og hjálpsamur. Hann mátti aldrei aumt sjá, og auðgaði hann líf allra þeirra sem honum kynntust. Hann kunni líka að samgleðjast öðrum og gerði það af öllu hjarta.

Við höfum upplifað

...