Rannsókn á manndrápi í sumarhúsi í Kiðjabergi í uppsveitum Árnessýslu 20. apríl er á lokastigi, að sögn Jóns Gunnars Þórhallssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Hann sagði við mbl.is í gær að rannsókninni miðaði vel og að vonast væri til þess að henni lyki í sumar. Litáískur karlmaður er grunaður um manndráp í sumarhúsinu í Kiðjabergi. Samlandi hans var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu viðbragðsaðila á vettvang.

Upphaflega voru fjórir menn handteknir 20. apríl en þremur þeirra hefur nú verið sleppt.