Guðmundur Valdimar Þorkelsson fæddist í Reykjavík 12. febrúar 1945. Hann lést á Landspítalanum Hringbraut þann 14. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Bergþóra Kristinsdóttir frá Patreksfirði, f. 14. júní 1907, d. 11. febrúar 1976, og Þorkell Ásmundsson trésmiður, frá Fellsaxlarkoti í Skilmannahreppi, f. 25. apríl 1902, d. 18. júní 1997. Systkini Guðmundar eru Guðbjörg, f. 1929, d. 2016, maki Páll Guðjónsson, eignuðust þau fjögur börn. Kristín Evlalía, f. 1931, d. 1934. Ásmundur Kristbjörn, f.1932, d. 2008, maki Hrafnhildur Kristinsdóttir og eignuðust þau tvö börn. Ellen, f. 1933, maki Gunnar Kristinsson (látinn), eignuðust þau einn son. Kristín Evlalía, f. 1936, d. 2000, maki Kristján Samúelsson (látinn), eignuðust þau tvo syni. Helga Ingibjörg, f. 1942, maki Guðmundur H. Haraldsson (látinn), eignuðust þau þrjú börn.

Guðmundur kvæntist árið 1971

...