![Myndlistarmaður Jón Sigurpálsson.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/c0765b1c-cddd-4ac2-a951-e4368fc3f38f.jpg)
Vitar nefnist sýning sem opnuð verður á vegum sýningarsalarins Slunkaríkis á Ísafirði í dag, föstudag, kl. 17. Opnunin er jafnframt útgáfuhóf kversins Vita, en tilefni bæði sýningar og kversins er að myndlistarmaðurinn og fyrrverandi stjórnarformaður Edinborgarhússins Jón Sigurpálsson (1954-2023) hefði orðið sjötugur 2. ágúst. „Fjölskylda Jóns hefur undanfarna mánuði tekið saman verk Jóns sem finna má í almannarýmum hér á landi og erlendis. Kverið er hannað af Einari Viðari Guðmundssyni Thoroddsen með textum eftir Halldór Björn Runólfsson, Björn Vigni Sigurpálsson og Kristínu Hagalín Ólafsdóttur.
Á sýningunni verða prentverk, ljósmyndaverk, veggverk og skúlptúrar eftir Jón ásamt skissum af listaverkum sem bæði urðu og urðu ekki að veruleika,“ segir í fréttatilkynningu. Viðburðurinn í dag er haldinn í Bryggjusal Edinborgarhússins. Sýningin stendur til 29. september.