Ása Halldórsdóttir fæddist 25. júlí 1959. Hún lést 7. júlí 2024.

Útför Ásu fór fram 22. júlí 2024.

Elsku mamma með stærsta hjartað og mýkstu hendurnar.

Ég á bágt með að trúa að þú sért farin frá okkur, ef þú bara vissir hvað þú skilur eftir þig stórt skarð í tilverunni.

Ég er svo þakklát fyrir þessa frábæru æsku sem þið pabbi gáfuð mér. Þú gerðir alltaf þitt besta og meira til þegar kom að okkur börnunum þínum, passaðir upp á okkur eins og ljónamamman sem þú varst. Ástríða þín fyrir gleði okkar og velgengni var augljós, umvafði okkur öll. Alltaf mjög hvatvís, stórtæk og hvergi feimin. Keyptir geisladiskinn á Benidorm við dansinn sem við Bjössi elskuðum og endaðir á að kenna hálfu Hlíðahverfinu dansinn. Mikið fékk ég oft að heyra frá öðrum krökkum hvað mamma

...