![Björgun Ferðafólki sem festi bíl í Kirkjufellsósi var bjargað á þurrt.](/myndir/gagnasafn/2024/07/29/aacf5534-12ee-47f2-9919-4799dabd2de0.jpg)
Ferðamenn lentu í vandræðum í gær þegar þeir festu bíl sinn á leið yfir Kirkjufellsós við Tungnaá, austan við Kýlingavatn.
Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum var kölluð út og fóru félagar úr björgunarsveitinni Ægi í Garði á staðinn. Fram kemur í tilkynningu að þegar að var komið var fólkið komið út úr bílnum og hélt til á þaki hans. Björgunarmaður með straumvatnsbjörgunarbúnað óð til þeirra og aðstoðaði fólkið í land. Þau voru gegnblaut, en mikið vatn hafði flætt inn í bílinn, og talsvert köld. Þau voru vafin í ullarteppi þegar þau komu í land og færð í bíl björgunarsveitarinnar. Bíll fólksins var svo losaður úr ánni.
Þá tókst björgunarsveitarmönnum að gangsetja bílinn og var hann fluttur ásamt ferðalöngunum að aðstöðu hálendisvaktarinnar í Landmannalaugum, þar sem þeirra beið heitt kakó og vel kynt hús.
Veðurstofan gaf í gær út gula viðvörun vegna úrkomu á Suður-
...