![Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður.](/myndir/gagnasafn/2024/07/29/f8760074-5767-49f4-a7a6-6a12bb318f0d.jpg)
Mörgum brá við víðtæk skemmdarverk í Frakklandi til þess að trufla Ólympíuleikana og valda enn meiri glundroða í landinu en jafnvel Macron Frakklandsforseta hefur tekist.
Þær fréttir eru þó ekkert hjá þeim stórtíðindum í hádegisfréttum Rúv. á föstudag þegar Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður upplýsti óvænt að verklagið benti til þess að þar hefðu „öfgavinstrimenn“ verið að verki.
Hlustendum Rúv. fyrirgæfist að halda að engir vinstriöfgamenn væru til í heiminum, þar fær enginn slíkan stimpil, sama hvað þeir ganga langt í ofstopanum; hvorki Stalín né Sólveig Anna Jónsdóttir, Pol Pot né Pale-Stína, Maduro né Gunnar Smári Egilsson.
Í bókum Rúv. hafa vinstrimenn til þessa ekki getað verið öfgamenn, en samkvæmt fjölmiðlavakt Creditinfo hefur hugtakið aðeins verið notað þar af
...