Víkingar losuðu um markastífluna sem hefur hrjáð þá síðustu vikur þegar þeir lögðu HK að velli, 5:1, í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í gærkvöld. Þeir gerðu nánast út um leikinn með því að komast í 3:1 á lokamínútum fyrri hálfleiks og fylgdu því eftir í seinni hálfleik
![Úlfarsárdalur Fred Saraiva fagnar öðru marka sinna fyrir Fram gegn Val.](/myndir/gagnasafn/2024/07/29/96b7b1ba-9aa1-457c-8733-f33f9048a477.jpg)
Úlfarsárdalur Fred Saraiva fagnar öðru marka sinna fyrir Fram gegn Val.
— Ljósmynd/Kristinn Steinn
Besta deildin
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingar losuðu um markastífluna sem hefur hrjáð þá síðustu vikur þegar þeir lögðu HK að velli, 5:1, í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í gærkvöld.
Þeir gerðu nánast út um leikinn með því að komast í 3:1 á lokamínútum fyrri hálfleiks og fylgdu því eftir í seinni hálfleik. Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk og Ari Sigurpálsson var með mark og stoðsendingu.
Víkingar, sem höfðu aðeins skorað eitt mark í síðustu fjórum leikjum í deild og Evrópukeppni, eru þá sex stigum á undan Blikum sem eiga þó leik til góða.
HK hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu fimm leikjum en helst þó enn fyrir ofan fallsætin.
...