Gent Andri Lucas Guðjohnsen er kominn á blað í Belgíu.
Gent Andri Lucas Guðjohnsen er kominn á blað í Belgíu. — Ljósmynd/Szilvia Micheller

Andri Lucas Guðjohnsen fór vel af stað í fyrsta leik með sínu nýja liði, Gent, í fyrstu umferð belgísku A-deildarinnar í knattspyrnu í gær. Gent, sem keypti Andra af Lyngby í sumar, vann útisigur á Kortrijk, liði Freys Alexanderssonar, 1:0, og Andri skoraði sigurmarkið á 59. mínútu. Hann sendi boltann í netið hjá félaga sínum úr landsliðinu, Patrik Sigurði Gunnarssyni, sem spilaði sinn fyrsta leik með Kortrijk, en hann var keyptur þangað frá Viking Stavanger í sumar.