París Simone Biles á flugi í liðakeppninni í fimleikum í gær.
París Simone Biles á flugi í liðakeppninni í fimleikum í gær. — AFP/Paul Ellis

Fimleikakonan Simone Biles og liðsfélagar hennar í bandaríska landsliðinu áttu frábæran dag í öðrum hluta undankeppni liðakeppninnar á Ólympíuleikunum í París í gær. Þær eru með örugga forystu eftir tvo hluta af fimm og Biles er með bestu samanlögðu einkunn allra, 59,566. Hún glímir þó við meiðsli og haltraði um í upphituninni en framkvæmdi samt eitthvert erfiðasta stökk í greininni og fékk fyrir það 15,800 stig.