Tyrkneska þingið hóf í gær tilfinningaþrungna umræðu um lagafrumvarp sem miðar að því að stemma stigu við vaxandi fjölda flækningshunda í landinu. Ríkisstjórnin áætlar að um fjórar milljónir flækingshunda séu í landinu, og lagafrumvarpið gerir ráð…
![Á borðanum segir Afturkallið lögin.](/myndir/gagnasafn/2024/07/29/ee6da55b-81fc-4cda-b567-7cad31ba597d.jpg)
Á borðanum segir Afturkallið lögin.
Tyrkneska þingið hóf í gær tilfinningaþrungna umræðu um lagafrumvarp sem miðar að því að stemma stigu við vaxandi fjölda flækningshunda í landinu.
Ríkisstjórnin áætlar að um fjórar milljónir flækingshunda séu í landinu, og lagafrumvarpið gerir ráð fyrir að heimilt verði að aflífa veika hunda og dýr sem sýna af sér „neikvæða hegðun“. Þá verði hámarkssekt fyrir að skilja hunda eftir á vergangi hækkuð 60-falt í um 60 þúsund lírur, jafngildi um 250 þúsund króna.
Lagafrumvarpið er umdeilt og hefur því verið mótmælt á götum úti en andstæðingar þess segja að það muni leiða til fjöldaaflífunar á hundum.