París Anton Sveinn keppir í aðalgreininni í dag.
París Anton Sveinn keppir í aðalgreininni í dag. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir keppa í seinni greinum sínum á Ólympíuleikunum í París í dag.

Snæfríður keppir í 100 m skriðsundi sem hefst kl. 10.39. Hún er í þriðja riðli af fjórum, á fyrstu braut. Undanúrslit eru kl. 19.25 í kvöld.

Anton keppir í 200 m bringusundi, aðalgrein sinni, sem hefst kl. 10.51. Hann er í fjórða og síðasta riðli, á annarri braut. Undanúrslitin eru kl. 19.47 í kvöld.