![](/myndir/gagnasafn/2024/07/30/7d3abe74-adf8-4b50-888e-2df6f312c58b.jpg)
Rekstrartekjur stefnumótaappsins Smitten hækkuðu um 887% milli áranna 2022 og 2023. Námu tekjurnar 1,2 milljörðum króna á síðasta ári en 125 milljónum króna árið áður. Hagnaður félagsins nam 337 milljónum á síðasta ári en tapið árið áður nam 259 milljónum.
Í samtali við Morgunblaðið segir Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, hver skýringin sé á tekjuaukningunni.
„Við erum með bandarískt móðurfélag sem heitir Smitten technologies inc. og íslenska félagið er dótturfélag þess félags og það starfar í raun sem rannsóknar- og þróunarfélag fyrir bandaríska félagið. Þannig að í raun er allur kostnaður sem verður til í íslenska félaginu gjaldfærður yfir til bandaríska félagsins sem útskýrir stærstan hluta af þessum tekjum.“
Davíð segir jafnframt að á síðasta ári hafi hugbúnaður félagsins verið seldur, sem útskýrir tekjuaukninguna einnig að hluta til. Aðspurður segir Davíð áhugann á Smitten vera mikinn. Smitten sé
...