Ásdís Benediktsdóttir fæddist 21. ágúst 1947. Hún lést 3. júlí 2024.

Útför Ásdísar fór fram 22. júlí 2024.

Enn einn af okkar dyggu sjálfboðaliðum, Ásdís Benediktsdóttir, er látin.

Ásdís var lengst af starfandi í sölubúð Kvennadeildar Rauða krossins á Landspítalanum við Hringbraut. Hún hafði alla þá kosti sem nauðsynlegir eru í starfinu. Tók alltaf vel á móti viðskiptavinum og sýndi þeim skilning og umhyggju, geislandi eins og henni einni var lagið.

Ásdís fylgdist vel með því sem var að gerast hjá deildinni þrátt fyrir að geta ekki unnið lengur. Við vonuðumst alltaf til þess að hitta hana á næsta fundi eða viðburði.

Við hjá Kvennadeildinni kveðjum Ásdísi með þakklæti fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins í gegnum

...