Kristín Guðmundsdóttir fæddist í Keflavík 19. janúar 1958. Hún lést á Landspítalanum 16. júlí 2024.

Foreldrar hennar voru Dagbjört Jónsdóttir, f. í Ásmúla í Ásahreppi 6. desember 1921, d. 23. apríl 2012, og Guðmundur Ásgeir Jónsson rafvirkjameistari, f. í Reykjavík 21. janúar 1926, d. 13. júní 1982. Bræður Kristínar eru: Ólafur Jón, f. 1948; Jón Ágúst, f. 1950, d. 2009; Sveinbjörn Gunnar, f. 1951; Aðalsteinn Kristján, f. 1953; Brynjólfur Stefán, f. 1956; Guðmundur Ásgeir f. 1960; Dagbjartur Helgi, f. 1962.

Hinn 24. desember 1995 giftist Kristín eftirlifandi eiginmanni sínum, Sverri Gísla Haukssyni rafeindavirkja, f. 5. janúar 1958. Sonur Kristínar og kjörsonur Sverris er Haukur Guðmundsson, f. 14. febrúar 1986. Kona hans er Anna Andrea Kjeld, f. 8. júlí 1986. Börn þeirra eru Arnljót María Kjeld Hauksdóttir, f. 15. júní 2015, og Dagbjartur

...