Framkvæmdir við vegagerð vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar eru hafnar, en verið er að leggja veg upp frá Landvegi að Hvammi í Landsveit þar sem áformað er að virkjunin rísi. Fyrirtækið Þjótandi annast lagningu vegarins. Einnig er verið að undirbúa að leggja grunn að vinnubúðum á svæðinu, ásamt lagningu veitukerfa fyrir þær og framkvæmdasvæðið í heild. Virkjunarleyfi liggur þó ekki fyrir enn, en skv. upplýsingum frá Þóru Arnórsdóttur, forstöðumanni samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun, er búist við að Orkustofnun gefi út leyfið í síðasta lagi í lok ágústmánaðar.

Þegar það liggur fyrir verður sótt um framkvæmdaleyfi til viðkomandi sveitarfélaga.

Auk framkvæmda

...