Margrét Edda Stefánsdóttir fæddist 19. október 1975. Hún lést 2. júlí 2024.

Jarðarför hennar fór fram 16. júlí 2024.

Það er komið að kveðjustund, þriðjudaginn 16. júlí fylgdi ég frænku minni henni Margréti Eddu Stefánsdóttur síðasta spölinn en hún varð bráðkvödd á heimilli sínu 2. júlí síðastliðinn. Við Magga fylgdumst að í gegnum barnæskuna enda aðeins nokkrir mánuðir mánuðir á milli okkar. Hún var fædd í október 1975 og ég í júní 76. Ég var vanur að minna hana rækilega á það ár hvert þegar ég náði henni að aldri og hún svo aftur þegar hún tók fram úr mér á nýjan leik.

Við vorum því stundum meira eins og systkini en það héldu líka margir enda vorum við Magga mjög lík, sérstaklega fyrstu árin, svo lík reyndar að sumir trúðu því að við værum tvíburar. Við ólumst jafnframt upp í sömu götunni,

...