Tindastóll náði í dýrmætt stig í fallbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta á dramatískan hátt í gærkvöld á meðan keppinautarnir í Fylki og Keflavík töpuðu sínum leikjum. Á Sauðárkróki stefndi allt í sigur Þórs/KA þar sem Karen María…
![Gleði Tindastólskonur fagna Jordyn Rhodes eftir að hún jafnaði, 3:3, í uppbótartíma leiksins gegn Þór/KA.](/myndir/gagnasafn/2024/07/31/13bea327-2589-4131-bdc6-eb063b036d6a.jpg)
Gleði Tindastólskonur fagna Jordyn Rhodes eftir að hún jafnaði, 3:3, í uppbótartíma leiksins gegn Þór/KA.
— Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson
Besta deildin
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Tindastóll náði í dýrmætt stig í fallbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta á dramatískan hátt í gærkvöld á meðan keppinautarnir í Fylki og Keflavík töpuðu sínum leikjum.
Á Sauðárkróki stefndi allt í sigur Þórs/KA þar sem Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði tvívegis fyrir Akureyrarliðið sem var komið í 3:1. Þá skoraði Sandra María Jessen, langmarkahæsti leikmaður deildarinnar, sitt 16. mark á tímabilinu.
En Jordyn Rhodes skoraði tvö mörk fyrir Tindastól í lokin og jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu í uppbótartímanum, 3:3.
Tindastóll er þar með þremur stigum á undan Keflavík og Fylki og allt stefnir í harðan slag þeirra á milli um eitt sæti í
...