![Óli Björn Kárason](/myndir/gagnasafn/2024/07/31/caa37e29-7f91-4957-bd8e-424d805fd4e5.jpg)
Óli Björn Kárason
Það er gömul klisja að vika sé langur tími í pólitík. Oftar en ekki er hún merkingarlaus orðaleppur – innihaldslaus orð stjórnmálamanna, fjölmiðlunga og álitsgjafa þegar lítið er lagt til málanna. En svo gerist það. Á örfáum dögum gjörbreytist pólitískt landslag líkt og kjósendur í Bandaríkjunum hafa fengið að kynnast.
Eftir hryllilega frammistöðu Joes Bidens Bandaríkjaforseta í kappræðum við Donald Trump undir lok júní, voru demókratar örvinglaðir. Úrræðaleysi og glundroði gróf um sig. Í huga þeirra var fátt sem gæti komið í veg fyrir endurkjör Trumps í Hvíta húsið. Repúblikanar ættu tryggan meirihluta í fulltrúadeildinni og möguleika á að ná meirihluta í öldungadeildinni. Þar með hefði Trump öll tök á bandarískri stjórnsýslu – demókratar yrðu í raun áhrifalausir á komandi árum.
...