Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina, eins og hefð er fyrir. „Aðaltónleikadagskráin fer fram innandyra og boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld á tveim sviðum í Gamla Bíó og á Röntgen. Á útisvæðinu verður svo hátíðarstemning alla helgina,“ segir í viðburðarkynningu. Á vefnum tix.is má kaupa miða á stök kvöld og armband sem gildir fyrir alla hátíðina. Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni í ár eru Páll Óskar, Ex.Girls, Skrattar, Hermigervill, Hipsumhaps, Hatari, Kælan mikla, Kött Grá Pjé & Fonetik Simbol, Úlfur Úlfur, Vök og Una Torfa.