Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee, einn fremsti íþróttamaður landsins undanfarinn áratug, kvaddi stærsta sviðið í gærkvöldi er hann hafnaði í 15. sæti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París
![Kveðjustund Anton Sveinn McKee virðir fyrir sér lokastöðuna í 200 metra bringusundinu eftir að hann kom í mark í síðasta skipti á Ólympíuleikum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/31/d333929d-1cd0-440b-8012-bca58291905c.jpg)
Kveðjustund Anton Sveinn McKee virðir fyrir sér lokastöðuna í 200 metra bringusundinu eftir að hann kom í mark í síðasta skipti á Ólympíuleikum.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee, einn fremsti íþróttamaður landsins undanfarinn áratug, kvaddi stærsta sviðið í gærkvöldi er hann hafnaði í 15. sæti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París. Var sundið það síðasta á ferlinum hjá Antoni á Ólympíuleikum.
Hann vildi þó ekki staðfesta að sundhettan væri alveg komin á hilluna er hann ræddi við Morgunblaðið eftir sundið, en ljóst er að Anton keppir ekki á fleiri Ólympíuleikum. Leikarnir í París voru hans fjórðu og síðustu leikar en hann var áður með
...