Filippía Jónsdóttir fæddist 27. júlí 1940 í Gröf í Svarfaðardal. Hún lést aðfaranótt 18. júlí 2024 á heimili sínu í Miðkoti, Dalvík.

Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 25. maí 1905, d. 21. febrúar 1988, og Anna Arnfríður Jónsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 29. janúar 1985. Systkini Filippíu eru Stefán, f. 8. maí 1934, d. 24. desember 2021, Gunnar, f. 5. október 1935, Jón Anton, f. 24. nóvember 1936, d. 25. september 2016, Helgi, f. 5. júlí 1939, Gerður, f. 6. maí 1942, Kristján Tryggvi, f. 6. maí 1945, Svanfríður, f. 12. september 1949, og Hanna Soffía, f. 10. júlí 1952.

Filippía giftist Hafsteini Braga Pálssyni frá Miðkoti, f. 8. febrúar 1939, þann 4. júní 1960. Börn þeirra eru: 1) Jóhannes, f. 27. febrúar 1962, maki Heiðrún Ásgeirsdóttir, f. 11. desember 1958. 2) Arna Gerður, f. 3. febrúar 1964, gift Guðmundi Heiðari Óskarssyni, f. 27.

...