Jóhanna Elísa Skúladóttir
Jóhanna Elísa Skúladóttir

Jóhanna Elísa Skúladóttir kemur fram á tónleikum tónleikaraðarinnar Jazz í Djúpinu, í kjallara veitingastaðarins Hornsins, í kvöld kl. 20.30. „Ég hef verið syngjandi frá því í vöggu og hlakka til að koma fram á Jazz í Djúpinu,“ segir Jóhanna sem starfar sem tónlistarkona og leiðsögukona. Hún hefur gefið út tvær plötur, árin 2018 og 2020.

Á tónleikum kvöldsins flytur hún „nokkra klassíska slagara ásamt gömlu og nýju frumsömdu efni. Ég hlakka mikið til að flytja lagið „Volvo“ en það er samið um gamla 240 Volvo-bílinn minn sem brann,“ segir Jóhanna og rifjar upp að hún hafi átt bílinn þegar hún var á aldrinum 17 til 24 ára. „Ég lofa skemmtilegri stemningu í Djúpinu.“

...