Dagur Sigurðsson og hans menn frá Króatíu lögðu Alfreð Gíslason og lærisveina hans í liði Þýskalands að velli, 31:26, í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í París í gær. Slóvenar sigruðu Svía, 29:24, og þar með er baráttan í A-riðlinum orðin…
![Þjálfarinn Dagur Sigurðsson ræðir við sína menn í króatíska landsliðinu.](/myndir/gagnasafn/2024/08/01/b1d446cf-7a11-427c-a9c1-a99655a9a659.jpg)
Þjálfarinn Dagur Sigurðsson ræðir við sína menn í króatíska landsliðinu.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dagur Sigurðsson og hans menn frá Króatíu lögðu Alfreð Gíslason og lærisveina hans í liði Þýskalands að velli, 31:26, í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í París í gær.
Slóvenar sigruðu Svía, 29:24, og þar með er baráttan í A-riðlinum orðin gríðarlega tvísýn þar sem öll liðin hafa tapað og Svíar tvisvar.
Króatía, Spánn, Slóvenía og Þýskaland eru með fjögur stig en Svíar tvö. Stigalausir Japanar blanda sér ekki í baráttuna en eitt hinna fimm liðanna þarf að sitja eftir þegar átta liða úrslitin hefjast.
Á morgun eru tveir algjörir lykilleikir í næstsíðustu umferðinni þegar Króatar mæta Svíum og Þjóðverjar mæta Spánverjum. Slóvenar geta komið sér í nánast öruggt sæti með því að vinna Japana.