Elín Una Friðfinnsdóttir fæddist 26. desember 1954. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 24. júlí 2024.

Hún var dóttir hjónanna Rannveigar Ragnarsdóttur, f. 17. mars 1932, d. 6. maí 2018, og Friðfinns Friðfinnssonar, f. 26. júní 1917, d. 23. janúar 2011.

Elín var næstelst fimm systkina. Elstur er Ragnar Eyfjörð Árnason (sammæðra), f. 19. september 1951. Yngri eru Erla Hrund, f. 1. maí 1956, Elsa Björk, f. 9. október 1959, og Emil, f. 12. desember 1966.

Synir Elínar eru Valur Hólm, f. 29. október 1988, og Ari Hólm, f. 21. janúar 1990. Eiginkona Ara er Agnieszka Maria Jastrzabek.

Mestan hluta æskunnar bjó hún í torfbænum Baugaseli í Barkárdal með foreldrum sínum, systkinum, föðurafa og ömmu. Fjölskyldan flutti til Akureyrar vorið 1965 og fór þá dalurinn

...