Anna Sesselja Þórðardóttir fæddist 20. maí 1931. Hún lést 16. júlí 2024.

Útför Önnu var gerð 26. júlí 2024.

Elsku mamma hefur nú kvatt okkur eftir 93 gæfurík ár.

Eftir situr mikill söknuður, þakklæti og endalausar ljúfar og góðar minningar um stórkostlega konu. Allt það fallega sem hægt er að segja um manneskju passar við mömmu. Hún var klár, tillitssöm, hógvær, dugleg, falleg, góð, ljúf, skemmtileg, með stórt hjarta, talaði aldrei illa um neinn og elskaði okkur skilyrðislaust. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur og fyrir alla þá er til hennar leituðu enda laðaði hún alla að sér með einstakri mildi og blíðu.

Mamma var mjög listræn og góð tónlistarkona, hún spilaði á orgel, píanó og gítar, samdi lög, málaði myndir, skar út, saumaði og prjónaði bæði á

...