Myndlistarsýningin Himna verður opnuð í SÍM ­Gallery við Hafnarstræti 16 á morgun, laugardag, klukkan 14. „Á sýningunni eru verk eftir Önnu Jóa, Huldu Ágústsdóttur og Ragnheiði Guðbjargar Hrafnkelsdóttur
Anna Jóa
Anna Jóa

Myndlistarsýningin Himna verður opnuð í SÍM ­Gallery við Hafnarstræti 16 á morgun, laugardag, klukkan 14.

„Á sýningunni eru verk eftir Önnu Jóa, Huldu Ágústsdóttur og Ragnheiði Guðbjargar Hrafnkelsdóttur. Listakonurnar vinna í mismunandi miðla og beina sjónum að ásýnd hluta sem tengjast mismunandi rýmum og stöðum og tengslum manns og umhverfis,“ segir í viðburðarkynningu.

Sýningin, sem stendur til 18. ágúst, er opin mánudaga til föstudaga kl. 12-16 og laugardaga kl. 13-17. Rétt er að geta þess að sýningin verður opin mánudaginn 5. ágúst, þ.e. á frídegi verslunarmanna.