KR Óskar Hrafn Þorvaldsson kemur strax inn í þjálfarateymið.
KR Óskar Hrafn Þorvaldsson kemur strax inn í þjálfarateymið. — Morgunblaðið/Eyþór

Óskar Hrafn Þorvaldsson er kominn inn í þjálfarateymi karlaliðs KR í knattspyrnu og tekur við þjálfun liðsins að þessu tímabili loknu. KR-ingar tilkynntu þetta í gær og jafnframt að Pálmi Rafn Pálmason núverandi þjálfari hefði óskað eftir því að fá Óskar strax inn í teymið. Eftir að Óskar hætti hjá Haugesund í Noregi í vor var hann ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR og hann mun gegna því starfi áfram, samhliða þjálfuninni.