Sigurður Hermannsson fæddist 4. nóvember 1940. Hann lést 22. júlí 2024.

Útför hans fór fram 1. ágúst 2024.

Í dag kveðjum við Sigga, stóra bróður okkar. Siggi var elstur okkar og eini strákurinn í systkinahópnum. Hann var ekki gamall þegar hann flutti að heiman og kominn í vinnu. Siggi var mjög vinnusamur og afar vel liðinn í vinnu. Hann var haldinn ólæknandi bíladellu. Trúlega verður að fækka starfsmönnum í bifreiðaskráningu þegar hann hættir að skrá og afskrá bíla. Þótt hann væri bundinn við hækjur eða hjólastól var hugurinn alltaf alheill og á kafi í að skoða bíla á netinu. Siggi var heilsulítill síðustu árin en hugurinn alltaf langt á undan líkamlegri getu.

Elsku stóri bróðir, við systur þínar kveðjum þig með þakklæti fyrir árin öll sem við áttum

...