Sigursæl Simone Biles með sitt sjötta ólympíugull í gærkvöld.
Sigursæl Simone Biles með sitt sjötta ólympíugull í gærkvöld. — AFP/Loic Venance

Simone Biles frá Bandaríkjunum varð í gærkvöld ólympíumeistari í fjölþraut í fimleikum á ný þegar hún vann öruggan sigur í keppninni í París.

Biles vann greinina í Ríó fyrir átta árum en dró sig úr keppni á leikunum í Tókýó árið 2021 vegna andlegra erfiðleika.

Hún er sú fyrsta í sögunni sem leikur þennan leik, að endurheimta titilinn í fjölþrautinni eftir að hafa ekki varið hann á næstu leikum á eftir.

Hin 27 ára gamla Biles fékk 59,131 stig og var 1,199 stigum á undan Rebecu Andrade frá Brasilíu sem hafnaði í öðru sæti. Ólympíumeistarinn frá 2021, hin bandaríska Sunisa Lee, fékk bronsið.

Með þessu hafa Bandaríkin hlotið gullverðlaunin í greininni á sex Ólympíuleikum í röð og sjö sinnum

...