Frakkland Hákon Þór Svavarsson keppir í dag og á morgun.
Frakkland Hákon Þór Svavarsson keppir í dag og á morgun. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Hákon Þór Svavarsson tekur daginn snemma á Ólympíuleikunum í Frakklandi en hann hefur keppni í leirdúfuskotfimi klukkan hálf átta að íslenskum tíma, eða klukkan 9.30 að staðartíma. Keppt er í skotfimi í bænum Chaterauroux, sem er um 280 km sunnan við París. Um tveggja daga keppni er að ræða hjá Hákoni sem heldur áfram í fyrramálið klukkan sjö að íslenskum tíma. Komist hann í úrslitin hefjast þau klukkan 13.30 á morgun.