Ingibjörg Sigurðardóttir fæddist 21. júlí 1957. Hún lést 31. júlí 2023.

Útför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Elsku Inga.

Nú er liðið ár frá því að þú sameinaðist Leifa í Sumarlandinu. Eftir sitjum við sem elskum ykkur og skiljum ekki hvernig þið eruð bæði farin. Þetta eru skringilegir tímar, Jakaselið er tómt og á sölu. Það er einkennilegt að fljótlega verður ekkert athvarf lengur þar, mikið sem ég mun sakna þess. Sakna hlýjunnar sem þú skapaðir þar.

Jakaselslyktin, hvernig endurskapar maður hana? Ég er búin að prófa sama þvotta- og mýkingarefni en allt kemur fyrir ekki. Það vantar sennilega Ingu-essens, þetta með hlýjunni. Ég fann svo vel fyrir henni þegar ég flutti til ykkar stuttu eftir að við Siggi fórum að vera saman. Þið Leifi tókuð mér eins

...