![Eitt verkanna á sýningunni.](/myndir/gagnasafn/2024/08/03/28f161b7-ced9-4a68-9105-2546037035b7.jpg)
Eitt verkanna á sýningunni.
Gillian Pokalo hefur opnað sína fyrstu einkasýningu í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri. Þar sýnir hún verk sem endurspegla upplifun hennar af því að koma sér fyrir, festa rætur og blómstra á Íslandi. „Með því að sameina ljósmynd, prentsmíði og að mála, byrja verk Gillian á því að ljósmynda og skrásetja staði sem eru yfirgefnir og finna í þeim boðskap um seiglu og hverfulleika,“ segir í viðburðarkynningu. Sýningin stendur til 11. ágúst.