Margbrotið hjarta nefnist sýning sem Egill Logi Jónasson opnar í Portfolio Galleríi í dag, laugardag, kl. 16. „Margbrotið hjarta er ekki FM hjarta. Nei. Það er alvöru hjarta
Flug Eitt verkanna á sýningunni.
Flug Eitt verkanna á sýningunni.

Margbrotið hjarta nefnist sýning sem Egill Logi Jónasson opnar í Portfolio Galleríi í dag, laugardag, kl. 16. „Margbrotið hjarta er ekki FM hjarta. Nei. Það er alvöru hjarta. Og það að vera alvöru er ekki það sama og að taka sjálfan sig voða alvarlega og eitthvað blabla. Nei. Húmor er ekki FM. Nema það sé FM húmor. En það er ekki húmor. Það er bara eitthvert ömurlegt kjaftæði,“ segir í fréttatilkynningu.

Egill Logi Jónasson útskrifaðist með diplóma úr Myndlistaskólanum á Akureyri 2012 og útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA-gráðu árið 2016. Hann nýtir sér fjölbreytta miðla í listsköpun sinni svo sem málverk og tónlist. Egill Logi er einnig þekktur sem hliðarsjálfið „Drengurinn fengurinn“.