Björn Guðmundsson fæddist á Akureyri 24. janúar 1952. Hann lést á heimili sínu 10. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Guðmundur Björnsson vélaverkfræðingur, f. 2. nóvember 1925, d. 13. des 1988, og Guðlaug Lovísa Ólafsdóttir húsmóðir, f. 31. janúar 1924, d. 24. ágúst 2020. Systkin Björns eru Borghildur, f. 20. júní 1949, Rannveig, f. 1. október 1950, Guðrún, f. 2. apríl 1956, og Ólafur, f. 11. apríl 1958.

Hinn 5. janúar 1973 kvæntist Björn eftirlifandi eiginkonu sinni, Rebekku Sigrúnu Guðjónsdóttur sjúkraþjálfara, f. 23. september 1952. Börn þeirra eru: 1) Auður mannauðsstjóri, f. 2. október 1974, maki Eiríkur Kristinsson, f. 1. október 1974. Börn þeirra eru Sigríður Halla, f. 28. nóvember 2001, Björn Orri, f. 15. júní 2005, og Rebekka Ylfa, f. 18. febrúar 2016. 2) Unnur verkfræðingur, f. 17. apríl 1979, maki Burkni Maack Helgason, f. 2. desember

...