Bresk flugsveit er væntanleg til landsins í byrjun næstu viku, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35-orrustuþotum og 180 liðsmönnum. Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum…

Bresk flugsveit er væntanleg til landsins í byrjun næstu viku, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35-orrustuþotum og 180 liðsmönnum.

Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 5. til 16. ágúst.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti á Norður-Atlantshafi. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í byrjun september.