Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson

Jón Gunnarsson segir að uppbygging samgöngukerfisins verði að vera í forgangi næstu árin. Ef ekki þá blasi við algjört öngþveiti. Eftir sitji þó spurningin um hvernig skuli fjármagna mikla uppbyggingu þegar ríkissjóður er með lítið svigrúm til stórátaka.

„Ég tel rétt að stofna opinbert fyrirtæki sem taki yfir uppbyggingu og mögulega rekstur á stofnleiðakerfinu, auk allra jarðganga og valinna vegarkafla víða um land. Með sambærilegum hætti og Landsnet sér um meginflutningskerfi raforku,“ skrifar hann í grein í Morgunblaðið.

Hann segir að á þessum vegarköflum þyrfti að koma upp nútímagjaldtökukerfi á umferð. Þeir sem fari reglulega um gjaldtökuhlið myndu greiða lægra gjald en almennir notendur. Segir hann að ferðamenn myndu því mögulega greiða um 35-40% af uppbyggingu vegakerfis sem

...